Ljósmyndarinn
HULDA MARGRÉT
Ég er faglærður ljósmyndari með meistarapróf frá Tækniskólanum og hef áralanga reynslu af faglegri ljósmyndun. Auk þess er ég menntaður viðskiptafræðingur og hef unnið mikið í markaðssetningu, þar á meðal með markaðsteymum að því að skapa áhrifaríkt efni – ljósmyndir, grafík og myndbönd sem grípa athygli og skila árangri.
Ég legg mikla áherslu á faglega og persónulega þjónustu þar sem markmiðið mitt er að láta öllum líða vel fyrir framan myndavélina. Með því að skapa afslappað og öruggt umhverfi næ ég fram einstökum hliðum hvers og eins og fanga augnablik sem segja sína sögu. Hvort sem um ræðir persónulegar portrettmyndir, fjölskyldumyndir eða stóru stundir lífsins eins og t.d. fermingar, brúðkaup eða meðgöngu, þá legg ég metnað í að skapa myndir sem varðveita tilfinningar og tengsl.
Vönduð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, bæði í myndatökunni sjálfri og í eftirvinnslunni. Ég er ávallt með nýjustu tæknina og vinn með hágæða búnað til að tryggja bestu mögulegu útkomu fyrir viðskiptavini mína. Ég hef einnig tekið þátt í samsýningum hér heima og miðlað þekkingu minni áfram til næstu kynslóða ljósmyndara með því að hafa nema hjá mér.
Sambland af ljósmyndun og viðskiptafræðimenntun gefur mér dýrmætan skilning á því hvernig myndefni getur styrkt ímynd einstaklinga og fyrirtækja. Þannig get ég veitt markvissa ráðgjöf og skapað efni sem ekki aðeins er fallegt heldur einnig áhrifaríkt.
Ég er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og tek að mér fjölbreytt ljósmyndaverkefni fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hafðu samband í síma 8970250 eða á netfangið hulda@huldamargret.is til að fá frekari upplýsingar eða bóka myndatöku.
Ljósmyndir - Viðburðir - Video
Bóka myndatöku
Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Ut elit tellus, luctus nec ullamcorper mattis, pulvinar dapibus leo.
Hafðu samband í síma +354 8970250 eða fylltu út formið hér að neðan og ég hef samband eins fljótt og auðið er.