Fara beint í efni
Hulda Margrét ljósmyndari

Fermingarmyndataka

Einstök myndataka fyrir ferminguna. Persónuleg nálgun, varanlegar minningar.

Fermingardagurinn er einn af þessum stóru dögum í lífi okkar og honum ber að fagna. Það getur verið ómetanlegt að eiga fallegar myndir af fermingarbarninu og fjölskyldunni allri frá þessum tímamótum.

Ég geri sérsniðna fermingarmyndatöku fyrir hvert og eitt fermingarbarn og legg mikla áherslu á að gera stundina ánægjulega og skemmtilega. Gæludýrin og áhugamálin eru velkomin með, og kjörið er að taka fjölskyldumyndir í leiðinni.

Ég mæli með að koma í myndatöku nokkrum vikum fyrir ferminguna. Það minnkar álagið á sjálfum fermingardeginum og gefur möguleika á að sýna myndirnar í veislunni.

Fermingarpakkar

  • Silfurpakki

    95.000 kr.

    • 15 stafrænar myndir
    • Allt að 1 klst. í stúdíói eða úti
    • Fataskipti
    • Fjölskyldumyndir
    • Gæludýr og áhugamálin velkomin með
  • Gullpakki

    135.500 kr.

    • 25 stafrænar myndir
    • Allt að 1,5 klst. í stúdíói eða úti
    • Fataskipti
    • Fjölskyldumyndir
    • Gæludýr og áhugamálin velkomin með
  • Premiumpakki

    219.000 kr.

    • 30 stafrænar myndir
    • Allt að 1,5 klst. í stúdíói eða úti
    • Fataskipti
    • Fjölskyldumyndir
    • Gæludýr og áhugamálin velkomin með
    • Fermingarveislan mynduð í 1 klst.
    • Ljósmyndabók úr myndatöku og veislu

Öll verð eru með virðisaukaskatti og gilda til 31. desember 2026.

Án pakka

MyndatakanEngin stafræn mynd er innifalin.
35.000 kr.
Hver valin og unnin stafræn mynd
3.900 kr.

Sama verð gildir fyrir fjölskyldu-, óléttu-, portrett- og fermingarmyndatöku án pakka. Fjöldi stafrænna mynda er undir þér komið.

Búin að bóka? Hér eru góð ráð fyrir myndatökuna – fatnaður, áhugamál, gæludýr og val á myndum.