Skilmálar
Almennir skilmálar Huldu Margrétar Óladóttur ljósmyndara.
Almennir skilmálar þessir tóku gildi 1. janúar 2020. Viðskiptavinur samþykkir skilmálana með því að koma í viðskipti hjá ljósmyndara. Brot á höfundarrétti ljósmyndara og skilmálum þessum varða við höfundalög, sbr. grein 1.2, og áskilur ljósmyndari sér allan rétt vegna slíkra brota. Viðskiptavinir eru hvattir til að kynna sér kostnað við myndatökur, eftirvinnslu og stækkanir á myndum áður en pöntun er gerð.
1. Höfundarréttur
1.1. Allur höfundarréttur að ljósmyndum er í eigu Huldu Margrétar Óladóttur (hér eftir jafnframt vísað til sem „ljósmyndara“).
1.2. Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundalög nr. 73/1972.
1.3. Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti ljósmyndara né veitir hún heimild til breytinga á ljósmyndum.
1.4. Myndirnar eru til einkanota og ekki leyfilegt að nota þær í auglýsingaskyni eða til annarrar birtingar nema samið sé sérstaklega um slíkt.
2. Skyldur viðskiptavinar
2.1. Við myndbirtingar á netinu þarf að geta nafns ljósmyndara í texta (@mention) og merkja („tagga“) myndina með síðu ljósmyndara.
2.2. Óheimilt er að skera eða klippa til myndir undir neinum kringumstæðum, á netinu eða annars staðar.
2.3. Óheimilt er að breyta myndum á nokkurn hátt eða setja þær í gegnum snjallforrit með „effectum“ líkt og Instagram og sambærileg forrit bjóða upp á. Ekki er heimilt að rita á eða yfir verkið, skera það til eða breyta því á annan hátt.
2.4. Viðskiptavini er heimilt að prenta myndirnar til einkanota. Ljósmyndari býður einnig upp á vandaða prentun á gæðapappír – sjá verðskrá.
3. Meðhöndlun mynda
3.1. Viðskiptavinur samþykkir að ljósmyndari birti ljósmyndir á ljósmyndasíðum sínum og merki („taggi“) viðskiptavin og tengda aðila á birtum ljósmyndum. Viðskiptavini er þó heimilt að óska eftir samráði um val á myndum til birtingar og hvort þær verði merktar. Viðskiptavini er jafnframt heimilt að óska eftir því að myndir verði ekki birtar.
3.2. Ljósmyndun, myndvinnsla og varðveisla ljósmyndanna fer fram að beiðni viðskiptavinar. Viðskiptavinur staðfestir með undirritun sinni á skilmála þessa að hann samþykkir ljósmyndun, myndvinnslu, varðveislu, birtingu, merkingu og aðra vinnslu ljósmyndanna í samræmi við skilmála þessa, sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
3.3. Viðskiptavinur velur sjálfur þær ljósmyndir úr myndatökunni sem hann vill kaupa. Mögulegt er að kaupa aukamyndir úr hverri myndatöku og fer verð þeirra eftir gildandi verðskrá hverju sinni.
3.4. Stafrænar ljósmyndir afhendast eingöngu í vefupplausn.
4. Gjaldtaka
4.1. Viðskiptavini ber að greiða ljósmyndara fyrir þjónustu og vörur samkvæmt gildandi gjaldskrá ljósmyndara hverju sinni, sem finna má á heimasíðu ljósmyndara.
4.2. Verð á aukamyndum fer eftir gildandi gjaldskrá ljósmyndara hverju sinni þegar þær eru pantaðar.
4.5. Vörur og ljósmyndir úr myndatöku eru ekki afhentar nema öll greiðsla hafi borist.
4.6. Gjaldtaka fer fram í gegnum fjölskyldufyrirtæki ljósmyndara, Kop ehf., kt. 660111-0690, VSK-nr. 136523.