Fara beint í efni
Hulda Margrét ljósmyndari

Óléttumyndataka

Fallegar myndir af meðgöngunni – ein eða með fjölskyldunni.

Meðgangan er stuttur og einstakur tími sem gaman er að eiga fallegar myndir af. Í óléttumyndatöku – eða bumbumyndatöku – fangum við þetta tímabil, hvort sem þú vilt myndir af þér einni eða með maka, börnum og jafnvel gæludýrum.

Myndatakan fer fram í stúdíóinu mínu í Hafnarfirði eða úti, eftir því sem hentar. Margar velja að koma á síðasta þriðjungi meðgöngunnar, þegar bumban er orðin áberandi en enn þægilegt að hreyfa sig.

Ég legg áherslu á að þér líði vel og að myndatakan sé róleg og notaleg stund.

Verð

MyndatakanEngin stafræn mynd er innifalin.
35.000 kr.
Hver valin og unnin stafræn mynd
3.900 kr.

Sama verð gildir fyrir fjölskyldu-, óléttu-, portrett- og fermingarmyndatöku án pakka. Fjöldi stafrænna mynda er undir þér komið.

Öll verð eru með virðisaukaskatti og gilda til 31. desember 2026.