Um mig
Faglærður ljósmyndari með meistarapróf, og viðskiptafræðingur.
Ég er faglærður ljósmyndari með meistarapróf frá Tækniskólanum og hef áralanga reynslu af faglegri ljósmyndun. Auk þess er ég menntaður viðskiptafræðingur og hef unnið mikið við markaðssetningu, meðal annars með markaðsteymum að því að skapa áhrifaríkt efni – ljósmyndir, grafík og myndbönd sem grípa athygli og skila árangri.
Ég legg mikla áherslu á faglega og persónulega þjónustu þar sem markmiðið er að láta öllum líða vel fyrir framan myndavélina. Með því að skapa afslappað og öruggt umhverfi næ ég fram einstökum hliðum hvers og eins og fanga augnablik sem segja sína sögu. Hvort sem um ræðir persónulegar portrettmyndir, fjölskyldumyndir eða stóru stundir lífsins eins og fermingar, brúðkaup eða meðgöngu, legg ég metnað í að skapa myndir sem varðveita tilfinningar og tengsl.
Vönduð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, bæði í myndatökunni sjálfri og í eftirvinnslunni. Ég vinn með hágæða búnað til að tryggja bestu mögulegu útkomu. Ég hef tekið þátt í samsýningum hér heima og miðlað þekkingu minni til næstu kynslóðar ljósmyndara með því að hafa nema hjá mér.
Sambland ljósmyndunar og viðskiptafræðimenntunar gefur mér dýrmætan skilning á því hvernig myndefni getur styrkt ímynd einstaklinga og fyrirtækja. Þannig get ég veitt markvissa ráðgjöf og skapað efni sem er ekki aðeins fallegt heldur líka áhrifaríkt.
Ég er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og tek að mér fjölbreytt ljósmyndaverkefni fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hafðu samband í síma 897 0250 eða á hulda@huldamargret.is til að fá frekari upplýsingar eða bóka myndatöku.











































