Stjórnendamyndir
Vönduð og traustvekjandi portrettmyndataka fyrir stjórnendur.
Vönduð og traustvekjandi portrettmyndataka fyrir stjórnendur – til notkunar á heimasíðum, í ársskýrslum, fréttum, greinum og á viðburðum. Fagleg ímynd sem styður við sýn og stefnu fyrirtækisins.
Flestum finnst óþægilegt að láta mynda sig. Það er eðlilegt, og það er mitt hlutverk að gera það auðveldara. Ég gef mér tíma svo fólk nái að slaka á fyrir framan myndavélina.