Fyrirtækjaþjónusta
Ljósmyndir fyrir fyrirtæki og stofnanir – á vefinn, í ársskýrsluna, í fjölmiðla og á samfélagsmiðla.
Ég legg mikla áherslu á faglega og persónulega þjónustu þar sem ég vil láta öllum líða vel og þar með draga fram allar þær einstöku hliðar sem hver og einn hefur.
Vönduð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, bæði í myndatökunni sjálfri og í eftirvinnslunni. Ef áhugi eða spurningar vakna, endilega hafðu samband í síma 897 0250 eða sendu mér tölvupóst á hulda@huldamargret.is.
- StjórnendamyndirVönduð og traustvekjandi portrettmyndataka fyrir stjórnendur.
- StarfsmannamyndirSamræmdar og faglegar myndir af starfsfólki.
- IðnaðarmyndirIðnaðar- og heimildaljósmyndun í verksmiðjum, á byggingarsvæðum og vinnustöðum.
- ViðburðaljósmyndunViðburðir, ráðstefnur og fréttatilkynningar.
- VöruljósmyndunVörumyndir fyrir netverslanir, samfélagsmiðla og auglýsingar.
- ÍþróttaljósmyndunÉg mynda allar íþróttir – leiki, mót og liðsmyndir.
Svona gengur þetta fyrir sig
- Þú sendir fyrirspurn og segir mér hvað þarf að mynda og til hvers myndirnar verða notaðar.
- Ég sendi tilboð og tillögu að skipulagi: tíma, staðsetningu og fjölda mynda.
- Myndatakan fer fram á vinnustaðnum eða í stúdíói.
- Þú færð úrval til að velja úr og fullunnar myndir í þeim stærðum og sniðum sem þú þarft.
Verð
Verð fyrir fyrirtæki fer eftir umfangi verkefnisins. Sendu mér línu og þú færð tilboð.










































